A.S.N.I

september 19, 2008

Merkilegt

september 12, 2008

Það er komið fram í miðjan september og hann er ekki enn byrjaður að væla!

Tólfan

september 11, 2008

Boca Juniors eiga sína tólfu líka :-)

Stórtap

september 9, 2008

Það er spurning fyrir færustu íþróttasálfræðinga hvað gerðist hjá kvennalandslið Búlgaríu í íshokkí. Þær töpuðu 82-0 fyrir Slóvakíu um helgina.

Voru þær á skautum?

Fengu allar að spila hjá Slóvakíu?

Hvað sagði þjálfarinn í stöðunni 59-0?

Ísland – Skotland

september 9, 2008

Hinn skoski Eiður Smári

Hinn islenski Scott Brown

Hinn íslenski Scott Brown

“Iceland will play in a different way from Macedonia and I know they have some top players with Eidur Gudjohnsen, who is worldclass, and Hermann Hreidarsson, a player I took to Ipswich.

“He is a warrior and very aggressive but we have one or two of our own. We have Stephen McManus and and also Scott Brown, a player people have said is too aggressive.”

- George Burley

Scott Brown og Stephen McManus???? Þetta komment sýnir að Íslendingar eiga ekki að mæta með neina minnimáttarkennd á Laugardalsvöll á morgun.

Hoppsídeisí

september 8, 2008

og hoppum…

og hoppum…

og hoppum…

og hoppum og hoppum…

og hoppum…

og hoppum…

og … æi þið náið þessu…

einu sinni enn…

af hverju eru öll þessi læti????

Waste of talent – England style

september 8, 2008

Steve Gerrard hefur spilað 5 landsleiki í sinni réttu stöðu.

Í staðinn hafa Frank Lampard og og og og og….. einhverjir fengið að skapa ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir England.

Í stað þess að Gerrard hefur verið fyrirliði undanfarin ár þá hafa menn verið fyrirliðar sem:

Eru betri nærfatamódel en knattspyrnumenn.


Hafa verið dregnir fyrir dóm útaf dólgslátum.

Hafa lent í leikbanni útaf því að þeir voru hræddir við að pissa í glas.

Og svo furða menn sig á lélegu gengi enska landsliðsins???

Betri en Norðmenn

september 6, 2008

Er Ísland í alvöru lélegra en Noregur í fótbolta?

Þeir eiga John Carew, við eigum Eið Smára.

Þeir eiga Riise, við eigum Hermann Hreiðarsson.

Þeir eiga Morten Gamst og við eigum Emil Hallfreðsson.

Þeir eiga fullt af gaurum sem spila í Norsku úrvalsdeildinni. Við líka.

Þetta var ekki víti. Tökum þá heima. Við erum betri en þeir.

Að hafa svona leikmann eins og Eið er algjörlega priceless. Ótrúlegt hvaða kröfur fólk hefur til hans. Emil þarf að fara að spila betur með landsliðinu, Kristján Örn hefur loksins náð að koma sér í stuð í bláa búningnum. Heiðar Helguson rokkar feitt og það er algjör skömm að hann hafi ekki spilað með undanfarin ár.

Til að enda á dissi verður að segjast af fullri virðingu við ristað brauð með sultu, þá á það meira erindi í landslið heldur en markverðir liðanna í kvöld.

Next level – aukamínúta

september 6, 2008

Director´s cut af bestu fótboltaauglýsingu ársins. Guy Ritchie bætir við mínútu.

Stórskrýtið félagsskiptakerfi

september 5, 2008

 

Í framhaldi af kaupum Man City á Robinho og æsingi aðdáenda enska boltans í kjölfarið hef ég verið að velta einu fyrir mér.

Þetta félagsskiptakerfi í fótboltanum er alveg út í hött.

Frá sjónarhorni leikmanna það er. Sú hugsun að menn skuli keyptir og seldir milli liða og að lið fái greitt fyrir leikmenn er eiginlega bara fáránleg.

Robinho var óánægður í vinnunni sinni. Ég skil hann vel, hef upplifað slíkt og langaði að skipta um vettvang. Ég skipti yfir á annan vinnustað sem ég var mjög ánægður með að komast á og þar með lauk samskiptum mínum og fyrrverandi vinnuveitanda.

En Robinho sem var búinn að finna sér nýjan vinnustað sem hann langaði að vinna á, vinnustað þar sem honum buðust ákjósanleg laun, góð fríðindi og áhugaverðir vinnufélagar með gífurlegan metnað til að vera á toppnum í sínum geira. En hann gat ekki farið þangað vegna þess að hann var “SELDUR” á annan vinnustað.

Ég veit ekki með Robinho en ég hefði orðið alveg brjálaður!

Og nú sé ég það sem ég taldi áður vera vanhugsuð ummæli Sepp Blatters um Ronaldo og Man Utd. í nýju ljósi. Starfsmanni líður illa í vinnunni, vill skipta en fær það ekki. Ætli þetta myndi líðast einhversstaðar annars staðar? Maður hefur séð lykilstarfsmenn bankastofnanna skipta eins og ekkert væri, og þar eru nú umtalsvert meiri hagsmunir í húfi heldur en í boltaleik. Þeir þurfa bara að bíða í ákveðinn tíma á milli starfa.

Ég hef reynt að velta því fyrir mér hvað í ósköpunum réttlæti það að ef starfsmaður skiptir um vinnustað að þá verði að borga fyrrum vinnuveitenda hans mun meira fyrir að fá hann í vinnu heldur en honum sjálfum. Ég hef reynt að sjá fyrir mér að  skipta um vinnu og fengi aðeins hærri laun en á fyrri vinnustað, en gamli atvinnuveitandinn fengi ENNÞÁ meira heldur en ég fyrir starfskrafta manns.

Ég yrði alveg brjálaður!

Spái því að í framtíðinni munu lið ekki komast upp með þetta. Bestu leikmennirnir munu láta á þetta reyna og munu hafa sigur úr býtum.  Þeir muni semja á sínum forsendum við þau lið sem þeir vilja semja við, með uppsagnarákvæðum.

Eðlilega.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.