Er Ísland í alvöru lélegra en Noregur í fótbolta?
Þeir eiga John Carew, við eigum Eið Smára.
Þeir eiga Riise, við eigum Hermann Hreiðarsson.
Þeir eiga Morten Gamst og við eigum Emil Hallfreðsson.
Þeir eiga fullt af gaurum sem spila í Norsku úrvalsdeildinni. Við líka.
Þetta var ekki víti. Tökum þá heima. Við erum betri en þeir.
Að hafa svona leikmann eins og Eið er algjörlega priceless. Ótrúlegt hvaða kröfur fólk hefur til hans. Emil þarf að fara að spila betur með landsliðinu, Kristján Örn hefur loksins náð að koma sér í stuð í bláa búningnum. Heiðar Helguson rokkar feitt og það er algjör skömm að hann hafi ekki spilað með undanfarin ár.

Til að enda á dissi verður að segjast af fullri virðingu við ristað brauð með sultu, þá á það meira erindi í landslið heldur en markverðir liðanna í kvöld.
september 7, 2008 klukkan 7:28 pm
Þá er Ísland í góðum málum enda löngum verið vitað að íslenska bláberjasultan er afar framarlega á heimsvísu.